Vatnsdalur og Þing

Vatnsdælasaga

Hefurðu lesið Vatnsdæla sögu?
 

Innskráning



Tónleikar Þingeyrum 4. júní

Funi – Tónleikar kl. 15:00

Funi, sem eru þau Bára Grímsdóttir, Chris Foster og Andri Eyvindsson, halda tónleika í Þingeyrakirkju þann 4. júní. Þeim til aðstoðar er Kór Undirfells -og Þingeyrasókna.

Á efniskrá tónleikanna eru gömul og ný lög sem tengjast Vatnsdalnum. Kvæðin eru mörg eftir Vatnsdælinga sem bjuggu í dalnum á síðustu öld, þar á meðal föður Báru, Grím Lárusson og ömmu, Péturínu Jóhannsdóttur.
Bára, Chris og Andri syngja og leika á gítar, langspil, klarinett og kantele (borðhörpu). Lögin eru einkum þjóðlög, sum eftir Báru, sem sá um útsetningar.                

Eftir tónleikana verður opnuð myndlistasýning í Klausturstofu og boðið upp á kaffiveitingar.

Verð á tónleikana er kr. 2.000.-

 

 

Tónleikarnir eru styrktir af Menningarráði Norðurlands vestra og SAH Afurðir ehf.

 
Myndir Vatnsdæla sögu

Laugardaginn 4. júní verður opnuð sýning með málverkum Ingólfs Björgvinssonar myndlistamanns á Klausturstofu á Þingeyrum. Myndirnar vann hann við atburði Vatnsdæla sögu og voru þær gefnar út á Sögukorti Vatnsdæla sögu árið 2009. Sýningin opnar í kjölfar tónleika sem verða haldnir í Þingeyrakirkju fyrr um daginn.

 

Sýningin er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra

 
Hljóðleiðsögn

Út er komin geisladiskur með leiðsögn um Vatnsdalinn. Diskurinn er gefinn út af félaginu Landnám Ingimundar gamla og er um 70 mínútna langur. Á diskinum er blandað saman tónlist og upplestri. Diskurinn er hugsaður fyrir ferðamenn og aðra áhugasama um Vatnsdalinn sem geta keyrt um dalinn og um leið hlustað á diskinn í spilaranum í bílnum. Sagt er frá fjölmörgu áhugaverðu á leiðinni og hefst leiðsögnin á frásögn af landnámi Ingimundar gamla og Þingeyrakirkju en heldur síðan inn Vatnsdalshólana og hringinn í dalnum og er fjallað um það helsta sem fyrir augu ber á leiðinni. Hljóðleiðsögnin er gefinn út bæði á íslensku og ensku á sitthvorum diskinum.

Hljóðleiðsögnin skiptist upp í nokkra kafla og á milli þeirra og í upphafi og enda disksins er tónlist sem Bára Grímsdóttir sá um að velja, semja og útsetja fyrir diskinn. Allir textar og tónlistin er tengd Vatnsdalnum, gömul þjóðlög, rímur og vísur um Vatnsdalinn. 

Hljóðleiðsögn um Vatnsdalinn verður til sölu í verslunum víða um land, en einnig verður hægt að panta eintök með því að senda tölvupóst á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it eða hafa samband í síma 891-7464.Verð er kr. 2.500.

Read more...
 
Aðalfundur 2011

Aðalfundur Landnáms Ingimundar gamla verður haldinn í Klausturstofu á Þingeyrum laugardaginn 4. júní klukkan 13:30.

Fyrir liggja venjuleg aðalfundarstörf og umræður um starf félagsins á síðasta ár. Lagðir verða fram ársreikningar til samþykktar og skýrsla stjórnar. Aðalmenn í stjórn eru fimm og varamenn tveir, kosnir til tveggja ára í senn. Fjórir af fimm aðalmönnum hafa setið í stjórn tvö ár eða lengur.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum um starf félagsins og Húnvetnska sögu og menningu.

 
Þingeyrakirkja

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  • Kirkjan á Þingeyrum var vígð árið 1877 og er ein af fáum steinkirkjum á Íslandi. Elsti gripur kirkjunnar er frá 15. öld. 
  • Leiðsögn er í kirkjuna og í þjónustuhús eru sýningar um kirkjuna og selt kaffi. 
  • Kirkjan er opin alla daga í sumar frá 1. júní  31. ágúst. frá klukkan 10:00 - 17:00
  • Þjónustugjald í kirkjuna er kr. 400. Frítt er fyrir 16 ára og yngri og ellilífeyrisþegar og öryrkjarborga kr. 250 og hópar 10 eða fleiri kr. 250.
 
More Articles...
<< Start < Prev 1 2 Next > End >>

Page 1 of 2
English (United Kingdom)